Framúrskarandi skólar

  • Tökum inn leikskólabörn tvisvar á ári

  • Meiri gæði í skólamáltíðir

  • Svörum ákalli foreldra og komum á sumarfrístund

  • Sveigjanlegri leikskólar og einfaldari gjaldskrár

  • Hækkum heimgreiðslur

  • Eflum starfsemi Hlíðarskóla, minnkum biðlista og stækkum húsnæði

  • Stuðlum að því að komið verði á fót skólahljómsveit og skólakór á grunnskólastiginu

Virk efri ár

  • Tryggjum Félagi eldri borgara góða aðstöðu

  • Aukum framboð tómstunda fyrir eldri borgara meðal annars með verkefninu Karlar í skúrum

  • Styðjum við uppbyggingu lífsgæðakjarna og íbúða fyrir eldri borgara

  • Festum í sessi frístundastyrk fyrir eldri borgara

Notalegur bær

  • Drögum úr svifryki með því að auka þrif á götum bæjarins og kaupum nýjan svifryksmæli

  • Hjólavænni bær með hjólastæðaskýli í miðbænum

  • Eflum strætókerfið og fjölgum strætóskýlum í stækkandi bæ

  • Miðbær með blómstrandi mannlífi sem dregur til sín fólk og fyrirtæki og klárum Skátagilið

  • Lystigarðurinn verður heilsárs áfangastaður

  • Setjum sánu í Akureyrarlaug

  • Endurvekjum bílastæðaklukkuna og gerum bílastæði gjaldfrjáls fyrir eldri borgara

Ábyrg fjármál

  • Gætum aðhalds í rekstri og vinnum að því að gera rekstur bæjarins sjálfbæran

  • Gerum vandaðar og raunhæfar kostnaðaráætlanir

  • Höldum uppi öflugri hagsmunagæslu fyrir íbúa Akureyrarbæjar

Íþróttir og tómstundir

  • Frístundastyrkur fyrir foreldri í fæðingarorlofi

  • Öll börn óháð fötlun eða efnahag geti tekið þátt í íþróttum og tómstundastarfi

  • Klárum uppbyggingu á félagsvæðum Þórs og KA svo sómi sé að

  • Frístundastyrkur verði fyrir börn frá 5 til og með 18 ára og greiðslan hækki jafnt og þétt yfir kjörtímabilið

  • Nágrannasveitarfélög greiði sanngjarnt aðstöðugjald fyrir börn sem æfa í Íþróttamannvirkjum Akureyrarbæjar

  • Höldum áfram uppbyggingu á Jaðri

Öflugt atvinnulíf

  • Léttum á álögum á íbúa

  • Nægar atvinnulóðir

  • Styðjum við frumkvöðla og sækjum fram

  • Fáum unga fólkið okkar aftur heim eftir nám, með sterkum innviðum

  • Öflugt Hlíðarfjall, öflug vetrarferðaþjónusta

  • Áframhaldandi stuðningur við millilandaflug

  • Byggja nýja slökkvistöð

Velferðarmál

  • Leysum aðstöðuvanda Brekkukots til frambúðar

  • Höldum áfram að stytta biðlista fyrir félagslegar íbúðir

  • Styðjum við byggingu á óhagnaðardrifnu húsnæði

  • Klárum uppbyggingu á sérstökum búsetuúrræðum með sóma

Lifandi menning

  • Stækkum menningarsjóð á kjörtímabilinu

  • Eflum list og verkgreinakennslu í öllum grunnskólum

  • Lengjum laun bæjarlistamanns í 12 mánuði

  • Uppfærum menningarstefnu Akureyrarbæjar

  • Komum upp útisviði í miðbænum

  • Endurvekjum skapandi sumarstörf

Skipulagsmál

  • 3-30-300 og kvaðir um birtuskilyrði inn í aðalskipulag

  • Vöndum okkur með Akureyrarvöll

  • Þéttum skynsamlega og pössum upp á bílastæði

  • Bílastæðahús í miðbæinn og bætum við hæð á bílastæðið fyrir neðan Samkomuhúsið

  • Auðveldum fólki að byggja sér hús með því að dreifa gjöldum

  • Gerum reitinn sunnan Hofsbótar aðlaðandi

  • Byggjum upp Oddeyrina þar sem húsin verða að hámarki 4 hæðir

Samstarf við ríkið

  • Styðjum við ríkið í þeirra verkefnum:

    Stækkun Verkmenntaskólans á Akureyri - Fjölgun hjúkrunarrýma - Sjúkrahúsið á Akureyri og Kristnes - Menntaskólann á Akureyri - Háskólann á Akureyri

  • Berjumst fyrir:

    Áframhaldandi loftbrú - Þyrlusveit Landhelgisgæslu Íslands til Akureyrar - Stafræn gagnageymsla ríkisins á Akureyri