Til baka
Preben Jón Pétursson

Preben Jón Pétursson

Sæti #3

Mjólkurtæknifræðingur

Ég heiti Preben Jón Pétursson og er menntaður mjólkurtæknifræðingur frá Dalum tekniske skole og er giftur Höllu Björk Reynisdóttur flugumferðarstjóra og við eigum saman þrjár uppkomnar dætur. Hef starfað við stjórnunarstörf nær allt mitt líf og hef víðtæka reynslu úr atvinnulífinu.

Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á þjóðfélagsmálum bæði í nær og fjærumhverfi, hef einna helst verið að einbeita mér að skólamálum í víðasta skilningi þess orðs.

Ég er mikill safnari og hef átt í stökustu vandræðum með að henda hlutum í gegnum tíðina og er einstaklega veikur fyrir verkfærum af öllu tagi.

Stefni á að komast undir 20 í forgjöf í sumar og nota skíðin mín miklu meira næsta vetur( þarf ekki oft til). Ég er mikill stemnings maður og vil almennt hafa gaman í kringum mig, uppátækjasamur og hugmyndaríkur og get þar af leiðandi verið oggó lítið fljótfær.

Motto: þolinmæði fyrir því að hlutir sem eru illa gerðir er aldrei til góðs. Góðar stundir