Til baka
Paula del Olmo Gómez

Paula del Olmo Gómez

Sæti #8

Þjálfari / verkefnastjóri

Ég heiti Paula del Olmo Gómez og er frá Spáni. Ég starfa sem kennari við Naustaskóla, er verkefnastjóri og einnig blakþjálfari hjá yngri flokk í KA. Ég flutti til Íslands árið 2017, bjó fyrst í Neskaupstað en hef búið á Akureyri frá árinu 2018. Hér hef ég fundið heimili mitt þrátt fyrir að vera langt frá uppruna mínum. Ég er gift Miguel Mateo, sjúkraþjálfara hjá Eflingu og saman eigum við þriggja ára dóttur og nýfæddan son. Menntun mín er í auglýsingum og markaðsfræði og lauk ég meistaragráðu í samskiptum og viðburðastjórnun. Eftir að ég flutti til Íslands fór ég að starfa með börnum og síðan þá hef ég unnið bæði í skólum og íþróttastarfi. Það starf hefur reynst mér afar gefandi og er ég nú í kennaranámi. Mér er sérstaklega annt um málefni barna og fjölskyldna. Ég tel mikilvægt að efla leikskóla- og frístundastarf og skapa fleiri tækifæri fyrir börn og foreldra til að hittast, hreyfa sig og njóta samveru allt árið um kring. Með reynslu minni úr ólíkum löndum vil ég leggja mitt af mörkum til að þróa áfram öflugt og fjölskylduvænt samfélag á Akureyri. Ég býð mig fram með þessum lista vegna þess að ég treysti fólkinu sem þar starfar og þeim gildum sem það stendur fyrir. Ég er þakklát fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt og tel að fjölbreyttur bakgrunnur geti styrkt samfélagið okkar og fært ný sjónarhorn inn í umræðuna.