Til baka
María Pálsdóttir

María Pálsdóttir

Sæti #4

Leikkona / frumkvöðull

Ég heiti María Pálsdóttir og er Eyfirðingur, menntuð leikkona, kennari og leiðsögumaður. Ég flutti norður árið 2017 til að koma á fót Hælinu – setri um sögu berklanna á Kristnesi. Ég átti einnig þátt í að setja Fiðring á Norðurlandi á laggirnar, sem er hæfileikakeppni ungmenna eins og Skrekkur í Reykjavík.

Ég hef auk þess leikið, leikstýrt og kennt, og í fyrra hóf ég sánugusur í Sánuvagni Mæju.

Ég er gift Ólafi Ingimarssyni og saman eigum við þrjú börn og einn hund.

Mér finnst það vera þegnskylda að taka þátt í sveitarstjórnarmálum og ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur til að gera góðan bæ enn betri. Ég vil að við stöndum vörð um sjúkrahúsið okkar, vöndum okkur í skipulagsmálum, höldum umhverfismálum hátt á lofti og gefum í í menningarmálum; mig dreymir um skólakóra, skólahljómsveitir og leiklistar- og tónmenntakennslu í alla grunnskóla, auk skapandi sumarstarfa fyrir ungmenni, svo dæmi séu tekin. Samfélag sem hlúir að menningu, sköpun og fólkinu sínu er samfélag sem blómstrar.