Til baka
Kristján Valur Kristjánsson

Kristján Valur Kristjánsson

Sæti #13

Rafvirki

Ég heiti Kristján Valur Kristjánsson, er 44 ára gamall og menntaður rafvirki. Ég starfa í viðhaldsdeild TDK Foil í Krossanesi og býð mig fram á lista L-listans á Akureyri. Ég brenn fyrir félagsstarfi af ýmsum toga og sjálfboðastarf er stór hluti af mínu daglega lífi. Ég sit í stjórn Rafiðnaðarfélags Norðurlands og í stjórn handknattleiksdeildar Þórs. Þá er ég félagi í Round Table og gegni þar formennsku í góðgerðarsjóði félagsins. Einnig sit ég í stjórn starfsmannafélagsins á vinnustað mínum. Ég er kvæntur Elínu Eyjólfsdóttur, skrifstofustjóra, og saman eigum við tvær uppkomnar dætur. Ég er fæddur og uppalinn á Akureyri, líkt og fjölskylda mín, og því liggur mér mikið á hjarta að halda áfram að byggja upp bæinn okkar og gera hann enn betri. Þó margt hafi áunnist á undanförnum árum er alltaf svigrúm til frekari framfara.