← Til baka

Kristján Sigurólason
Sæti #15
Atvinnurekandi
Ég heiti Kristján Sigurólason og er fæddur og uppalinn á Akureyri og þekki því samfélagið og þau tækifæri sem bærinn hefur upp á að bjóða. Ég er giftur Arneyju Ásvaldsdóttur og saman eigum við tvö börn. Ég er atvinnurekandi og þar hef ég í gegnum árin kynnst heimamönnum og ferðamönnum alls staðar að úr heiminum og öðlast góða innsýn í ferðaþjónustu og atvinnulíf bæjarins. Ég hef mikinn áhuga á uppbyggingu bæjarins, öflugu atvinnu- og íþróttalífi og lifandi samfélagi þar sem gott er að búa og starfa. Ég vil leggja mitt af mörkum til að styrkja samfélagið og vinna að jákvæðri þróun fyrir alla íbúa.