
Jón Þorvaldur Heiðarsson
Sæti #9
Lektor við HA
Ég er fæddur og uppalinn á sauðfjárbúi í Húnaþingi, var í MA og hef verið búsettur á Akureyri síðan 2004. Ég er hagfræðingur að mennt en er einnig með grunnám í eðlisfræði. Ég er lektor við Viðskiptadeild HA og er giftur Jóhönnu Hjartardóttur félagsráðgjafa og eigum við fjögur börn. Ég hef mikinn áhuga á framþróun Akureyrar og Norðurlands. Það hefur gengið vel á Akureyri síðustu ár og áratugi og það ber að þakka. Litla borgin okkar er að mörgu leyti í öfundsverðri stöðu. En við þurfum að halda áfram. Ég vil áframhaldandi uppbyggingu, að við náum að byggja stöðugt þannig að mannfjölgun á Akureyri geti verið svipuð eða meiri en í landinu að meðaltali. Bæði með þéttingu byggðar og nýjum hverfum. Það skiptir miklu máli að bærinn sé fallegur, sérstaklega miðbærinn, ég gladdist hvað nýleg Dynheima-húsaröð er falleg. Ég tel að við þurfum jafnframt að standa vörð um og sækja fram í lífsgæðum á Akureyri jafnvel þó þau séu á forræði ríkisins. Þar hafi bæjarstjórn hlutverk. Má þar t.d. nefna utanlandsflug frá Akureyri þar sem hefur náðst árangur eftir langa mæðu. Ég tel að við þurfum að taka frekari skref í stöðu Akureyrar sem smáborgarinnar á Norðurlandi sem hefur jákvæð áhrif á allan landshlutann og öfugt. Samgöngur á landi skipta okkur miklu máli. Héðinsfjarðargöng og Vaðlaheiðargöng voru grafin, hvað svo?