Til baka
Guðríður Sveinsdóttir

Guðríður Sveinsdóttir

Sæti #10

Kennari

Ég er framhaldsskólakennari og kenni við Verkmenntaskólann á Akureyri, þar kenni ég stærðfræði og viðskipta- og hagfræðigreinar. Ég er gift Heiðari Davíð Bragasyni, golfkennara hjá Golfklúbbi Akureyrar, og saman eigum við tvo drengi, 15 og 19 ára. Ég er fædd á Sauðárkróki og bjó þar fyrstu fimm ár ævi minnar. Þá fluttumst við fjölskyldan til Akureyrar þar sem ég hef búið að mestu síðan 1987, þó með undantekningum á meðan ég stundaði nám við Kaupmannahafnar háskóla og þegar við hjónin bjuggum í Svíþjóð og Lúxemborg í tengslum við golfiðkunn mannsins míns. Ég hef stundað íþróttir frá barnsaldri og æfði meira og minna allar íþróttir sem í boði voru á Akureyri á sínum tíma, þó stóðu fimleikar og golf þar upp úr og lagði ég mesta áherslu á þessari tvær íþróttir fram til 17 ára aldurs. Í dag stunda ég blak og golf og þykir almennt gaman að hreyfa mig og njóta alls þess sem Akureyri hefur upp á að bjóða í þeim málum. Ég hef mikinn áhuga á fræðslu- og lýðheilsumálum sem tengist beint við starf mitt og íþróttaáhuga minn frá barnsaldri. Á Akureyri er gríðarlega öflugt íþróttastarf og fá bæjarfélög sem geta státað af jafn breiðri flóru af íþróttagreinum, mér finnst mikilvægt að við gerum okkar allra besta til að halda í þennan fjölda íþróttagreina, því þá eru meiri líkur á að sem flestir finni sér íþrótt við hæfi. Í mínum huga eiga ungir sem aldnir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi og óháð líkamlegri getu til hreyfingar, því eru verkefni eins og „Virk efri ár“ og „Allir með“ mikilvæg verkefni sem þarf að halda í. Á skólamálum hef ég brennandi áhuga á, bæði sem móðir grunnskólanema og sem fyrrverandi grunnskólakennari í bænum. Það er margt sem þarf að huga að og tel ég að samtal og samstarf við kennara sé grunnurinn að góðum fræðslumálum. Akureyri býr yfir gríðarlegum mannauð í leik- og grunnskólum bæjarins sem er lykillinn að vellíðan og árangri barnanna okkar.