
Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
Sæti #2
Bæjarfulltrúi / lífeindafræðingur
Ég heiti Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir og er fædd og uppalin á Akureyri. Ég er gift Hirti Larsen Þórðarsyni og saman eigum við tvær dætur, þriggja og fimm ára. Fjölskyldulífið hefur aukið áhuga minn á málefnum barna og þeim aðstæðum sem við sköpum fyrir þau í samfélaginu okkar. Eftir menntaskóla flutti ég til Reykjavíkur til að sækja mér menntun í lífeindafræði og verkefnastjórnun. Árið 2021 flutti ég aftur heim og fór þá að taka virkan þátt í bæjarmálunum. Í dag er ég formaður umhverfis- og mannvirkjaráðs og hef verið bæjarfulltrúi síðan haustið 2025. Auk þess starfa ég sem verkefnastjóri hjá Arctic Therapeutics. Ég hef sérstakan áhuga á lýðheilsu og tel að góð næring sé undirstaða heilbrigðis, sérstaklega á fyrstu árum lífsins. Þess vegna vil ég beita mér fyrir því að matur í leik- og grunnskólum bæjarins byggi á ferskum og næringarríkum hráefnum, þar sem gjörunnin matvæli eiga ekki heima. Ég býð mig fram til að leggja mitt af mörkum til að gera Akureyri enn betri fyrir börn, fjölskyldur og samfélagið allt.