
Arnar Már Bjarnason
Sæti #19
Deildarstjóri forvarna- og frístundamála
Ég er fæddur og uppalinn Akureyringur og starfa sem deildarstjóri forvarnar og frístundamála í Giljaskóla. Ég er er í sambúð með Huldu Ósk Jónsdóttir og á ég tvö börn. Ég hef starfað með ungmennum undanfarin 9 ár og hef því mikinn áhuga á málefnum þeirra og tel mikilvægt að við hlustum á þau og tökum mark á þeim þegar við erum að skipuleggja framtíðina þar sem það eru þau sem taka við keflinu seinna meir. Ég hef líka mikinn áhuga á íþrótta- og skipulagsmálum og langar til þess að bærinn okkar verði aðlaðandi kostur fyrir barnafjölskyldur sem og eldri borgara og að við höldum áfram að byggja Akureyri upp sem samfélag þar sem flest allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi og notið þess að búa hér.