Til baka
Andri Teitsson

Andri Teitsson

Sæti #5

Bæjarfulltrúi / verkfræðingur

Ég er framkvæmdastjóri hjá Orkusölunni og hef verið bæjarfulltrúi fyrir L-listann lengst af síðustu átta ár. Ég er sérstaklega stoltur af starfi bæjarstjórnarinnar á þessum tíma við uppbyggingu nýrra leikskóla þ.e. Klappa og Hagasteins og einnig umfangsmikilli endurbyggingu Glerárskóla og Lundarskóla og loks vil ég nefna fjölmörg verkefni á sviði íþróttamála, nú síðast mikla uppbyggingu á KA-svæðinu og gervigras á Þórssvæði, en við tekur næsta stórvirki sem er fjölnota íþróttahús á Þórssvæði. Það hefur sýnt sig að íþróttamannvirkin okkar eru hornsteinn í æskulýðsstarfi, lýðheilsu og ferðamennsku. Ég vil halda áfram að gera bæinn okkar ennþá fjölskylduvænni með að bjóða fjölbreytt úrræði fyrir barnafólk og brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla. Ég vil líka að stofnanir bæjarins reyni markvisst að bjóða meira af hlutastörfum til að sem flestir geti fundið sig á vinnumarkaðnum.