Til baka í fréttir

Styttum vinnudag barnanna

Umræða um bestu dvalarstundir barna, með vísan til rannsókna um þarfir barna og mikilvægi jafnvægis í stofnanadögn.

Flestir eru líklega sammála um að börn hafi gott af því að vera á leikskóla einhvern hluta dags. Þar leika þau við jafnaldra sína í öruggu umhverfi og fá kennslu og þjálfun frá fagfólki á því sviði. Hins vegar er allt best í hófi og við fullorðna fólkið finnum það eflaust mörg sjálf að stundum getur það verið erfitt að vera of lengi innan um margt fólk. Ég vil til dæmis benda á athyglisverð skrif dönsku fræðimannanna Heckmann og Gjerding um þetta efni. Þá hafa rannsóknir sýnt að börn undir 2ja–3ja ára aldri mynda lítil tengsl við önnur börn en hafa hins vegar mikla þörf fyrir samskipti við foreldra sína. Mesti streituvaldur í lífi barna á þessum aldri er aðskilnaður frá nánustu aðstandendum.

L-listinn hefur sett fram hugmynd um gjaldfrjálsan leikskóla á Akureyri í 6 klukkustundir á dag. Þetta gæti orðið veruleg hvatning til að stytta vinnudag barna og gefa þeim meiri tíma með foreldrum sínum. Foreldrar sem þurfa ekki lengri vistun en 6 klst. gætu sparað talsverð útgjöld með þessu en einnig bætt lífsgæði sín og barnanna umtalsvert með fleiri samverustundum. L-listinn hefur líka sett fram hugmyndir um að aukin áhersla verði lögð á sveigjanlegan vinnutíma og hlutastörf, sem myndi gera fleiri foreldrum kleift að notfæra sér kosti 6 klst. gjaldfrjáls leikskóla.

L-listinn vill einnig beita sér fyrir því að „íþrótta- og tómstundastarf barna í yngstu bekkjum grunnskóla komi inn í frístundina þannig að um klukkan 16 sé vinnudegi barnanna lokið." Markmiðið er að börn á þessum aldri kynnist mörgum íþróttagreinum, dansi, listum, handverki og fleiru. Minnkum „skutlið" sem kostar tíma og peninga og er ekki umhverfisvænt.

L-listinn vill gera raunverulegar breytingar til batnaðar á stöðu barnafólks á Akureyri. Taktu þátt í því með okkur með að kjósa L fyrir Lífsgæði.