Back to list
Ólöf Inga Andrésdóttir

Ólöf Inga Andrésdóttir

Position #18

Skólastjóri

Ég er menntaður grunnskólakennari og hef lokið diplómu í stjórnun menntastofnanna. Frá árinu 1988 hef ég starfaði í grunnskóla bæði sem grunnskólakennari og frá árinu 2002 sem skólastjórnandi og í dag er ég skólastjóri Síðuskóla á Akureyri. Ég hef mikla reynslu innan grunnskólans og sinnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Kennarasamband Íslands. Ég er gift Birki Björnssyni og eigum við fjögur börn og sex barnabörn. Ég býð mig fram til að leggja mitt af mörkum til að vinna að hagsmunum allra bæjarbúa svo Akureyri verði áfram besti staðurinn að búa á. Það er nauðsynlegt að leggja áherslu á þarfir íbúanna og byrja á þeim yngstu. Það þarf að stuðla að uppbyggingu í sveitarfélaginu, atvinnutækifærum og fjölbreyttum menntunartækifærum til að gera Akureyri að eftirsóknarverðu búsetusvæði.