← Back to list

Óðinn Svan Óðinsson
Position #1
Fjölmiðlamaður
Ég heiti Óðinn Svan Óðinsson og leiði L-listann í komandi sveitarstjórnarkosningum á Akureyri. Ég er giftur Heiðdísi Rósu Sigurjónsdóttur og saman eigum við þrjú börn. Ég starfaði í tæp sjö ár sem frétta- og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV þar sem ég aflaði mér víðtækrar reynslu af samfélagsmálum og stjórnsýslu. Ég er stúdent frá Verkmenntaskólanum á Akureyri og með BA-gráðu í fjölmiðlafræði frá Háskólanum á Akureyri. Ég er Akureyringur í húð og hár og þekki vel hversu gott er að búa í bænum og ala upp fjölskyldu hér. Nú vil ég leggja mitt af mörkum til að Akureyri haldi áfram að vaxa og dafna, með öflugri grunnþjónustu, traustum rekstri og metnaðarfullri uppbyggingu fyrir framtíð bæjarins.