Back to list
Oddur Helgi Halldórsson

Oddur Helgi Halldórsson

Position #22

Blikksmíðameistari / iðnrekstrarfræðingur

Oddur Helgi er blikksmíðameistari og iðnrekstrarfræðingur. Hann stofnaði og rak Blikkrás ehf í 38 ár, en hefur nú selt fyrirtækið og er sestur í helgan stein. Oddur Helgi er einn af stofnendum L-listans og sat í bæjarstjórn í 20 ár, frá 1994-2014. Oddur Helgi sat í bæjarráði í 16 ár, ásamt fjölda annarra stjórna, nefnda og ráða á vegum bæjarins, á löngum ferli sínum. Oddur Helgi er kvæntur Margréti Hörpu Þorsteinsdóttur og eiga þau 3 börn, tvö tengdabörn og 5 barnabörn. „Eftir 28 ár á L-listinn enn erindi í bæjarstjórn. Öll þau gildi sem við vinnum eftir eru í fullkomnu gildi og rödd okkar verður að heyrast, Akureyri og íbúum hennar til farsældar. Það sem batt okkur saman í upphafi og gerir enn, er sameiginlegur áhugi á nærumhverfi okkar og hvernig við getum gert mest gagn fyrir bæinn okkar. Það var hugsjón sem rak okkur áfram. Hugsjónin um að gera bæinn okkar betri og láta gott af okkur leiða sameinaði okkur undir merkjum L-listans“.