
Maríanna Margeirsdóttir
Position #12
Viðskiptafræðingur
Ég er 29 ára, fædd og uppalin á Sauðárkróki en flutti til Akureyrar árið 2018 þegar ég hóf nám við Háskólann á Akureyri. Ég heillaðist strax af því góða samfélagi sem bærinn hefur upp á að bjóða og hef búið hér síðan. Ég er viðskiptafræðingur með meistaragráðu í stjórnun og starfa sem verkefnastjóri og sérfræðingur hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands. Ég kenni einnig hóptíma hjá DSA – Heilsa og stend fyrir Sumarkjóla- og freyðivínshlaupinu sem hefur verið haldið síðastliðin tvö ár með frábærum viðtökum. Lýðheilsumál, skólamál og að styðja við Akureyri sem öflugt háskólasamfélag standa mér sérstaklega nærri. Ég vil leggja mitt af mörkum til að efla samfélagið okkar og gera góðan bæ enn betri – Það verður að vera gaman, annars er svo leiðinlegt!