
Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir
Position #6
Kennari / útgefandi
Ég heiti Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir og er móðir tveggja drengja, 12 og 19 ára. Ég starfa sem umsjónarkennari í Lundarskóla og finnst mjög gefandi að fylgjast með nemendum mínum vaxa og þroskast, námslega og félagslega. Sú reynsla hefur kennt mér hversu ólíkar þarfir okkar eru og hversu mikilvægt það er að samfélagið standi þétt við bakið á börnum og fjölskyldum þeirra. Í fyrra stofnaði ég útgáfufyrirtækið Söguspor og gaf út mína fyrstu bók, Mamma – sagan þín. Nú er bók númer tvö, Pabbi – sagan þín á leiðinni í prentun. Bækurnar eru útfyllingarbækur fyrir foreldra sem vilja skrifa eigin sögu, varðveita minningar og deila visku sinni með næstu kynslóð. Ég nýt þess að kasta boltanum á milli í hópi ólíks fólk, hlusta á mismunandi sjónarmið og vinna markvisst að sameiginlegum lausum á mikilvægum málum. Ástríðan mín liggur fyrst og fremst í velferðar- og skólamálum. Það er mikilvægt að sofna ekki á verðinum þegar kemur að forvarna- og lýðheilsumálum fólks á öllum aldri. Andleg og félagsleg heilsa styður við vellíðan einstaklinga sem er grunnur að sterku og heilbrigðu samfélagi. Akureyri er dásamlegur bær með mikla möguleika. En eins og með forvarnir, megum við ekki slaka á þó vel gangi. Við verðum að halda áfram að efla atvinnulífið, standa vörð um sjúkrahúsið okkar, tryggja fjölbreytt búsetuúrræði og gott lóðaframboð, styðja við nýsköpun og leggja grunn að sterku samfélagi fyrir alla íbúa.