
Guðrún Karitas Garðarsdóttir
Position #16
Viðskiptafræðingur
Ég er fædd og uppalin í Reykjavík. Flutti fyrst til Akureyrar 1993, bjó hér í þrjú ár og stundaði nám við HA. Flutti aftur til Akureyrar árið 2010 og er hér enn. Ég er viðskiptafræðingur og hef undanfarin ár verið sjálfstætt starfandi, m.a. í ferðaþjónustu og byggingariðnaði. Ég er gift Böðvari Kristjánssyni og samanlagt eigum við 4 börn og 3 barnabörn. Ég hef verið viðloðandi bæjarmálin á Akureyri frá árinu 2014, setið í Velferðarráði og kjörtímabilið 2022-2026 hef ég verið formaður í Samráðshópi um málefni fatlaðs fólks fyrir hönd L-listans. Á nýju kjörtímabili skiptir sköpum að gera vel í velferðarmálum og jafnframt að áhersla sé lögð á góða lýðheilsu á Akureyri. Það þarf að taka loftgæðamálin fastari tökum og í stækkandi bæ er kominn tími til að sjá góða innilaug á teikniborðinu fyrir æfingar og kennslu.