Back to list
Geir Kristinn Aðalsteinsson

Geir Kristinn Aðalsteinsson

Position #7

Framkvæmdastjóri

Ég heiti Geir Kristinn og er framkvæmdastjóri Mannauðs- og markaðsmála hjá Höldu-Bílaleigu Akureyrar. Ég er giftur Lindu Guðmundsdóttur og saman eigum við þrjá stráka. Ég hef góða reynslu úr bæjarmálunum eftir að hafa verið oddviti L-listans kjörtímabilið 2010-2014 en á þeim tíma gengdi ég embætti forseta bæjarstjórnar, ásamt því að sitja í bæjarráði og gegna formennsku í ýmsum nefndum. Þá hef ég setið sem stjórnarformaður og varaformaður í stjórn Norðurorku allt síðan 2010. Í dag er ég einnig ræðismaður Danmerkur á norðurlandi. Ég er mikill íþróttaáhugamaður og var m.a. formaður Íþróttabandalags Akureyrar í 10 ár. Ég legg mikla áherslu á að Akureyri standi áfram undir nafni sem íþróttabær og trúi því að íþróttir eru sú allra besta forvörn fyrir börnin okkar og unglinga.