
Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
Position #2
Bæjarfulltrúi / lífeindafræðingur
Ég heiti Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir og er fædd og uppalin á Akureyri. Ég er gift Hirti Larsen Þórðarsyni og saman eigum við tvær dætur, þriggja og fimm ára. Fjölskyldulífið hefur aukið áhuga minn á málefnum barna og þeim aðstæðum sem við sköpum fyrir þau í samfélaginu okkar. Eftir menntaskóla flutti ég til Reykjavíkur til að sækja mér menntun í lífeindafræði og verkefnastjórnun. Árið 2021 flutti ég aftur heim og fór þá að taka virkan þátt í bæjarmálunum. Í dag er ég formaður umhverfis- og mannvirkjaráðs og hef verið bæjarfulltrúi síðan haustið 2025. Auk þess starfa ég sem verkefnastjóri hjá Arctic Therapeutics. Ég hef sérstakan áhuga á lýðheilsu og tel að góð næring sé undirstaða heilbrigðis, sérstaklega á fyrstu árum lífsins. Þess vegna vil ég beita mér fyrir því að matur í leik- og grunnskólum bæjarins byggi á ferskum og næringarríkum hráefnum – þar sem gjörunnin matvæli eiga ekki heima. Ég býð mig fram til að leggja mitt af mörkum til að gera Akureyri enn betri fyrir börn, fjölskyldur og samfélagið allt.