
Árni Óðinsson
Position #11
Rafvirki / tæknimaður
Ég er Akureyringur í húð og hár, samt fæddur á Hjalteyri. Í dag er ég eldri borgari og kann því vel. Starfaði lengst af við Tæknideild Sjúkrahússins á Akureyri þar sem ég þjónaði hinum ýmsu lækninga tækjum og sérhæfði mig sérstaklega í myndgreiningabúnaði. Ég stafaði við Sjúkrahúsið í yfir fjörutíu ár en hef síðustu tíu árin starfað sjálfstætt og unnið fyrir hinar ýmsu Heilbrigðistofnanir víða um land. Eiginkona mín er Laufey Guðrún Baldursdóttir og eigum við þrjú börn, sjö barnabörn og eitt barnabarnabarn. Ég hef stundað íþróttir alla mína æfi og er skíðaíþróttin í mestum metum hjá mér og þar náði ég góðum árangri hér heima sem varð þess valdandi að ég keppti fyrir Íslands hönd víða erlendis meðal annars á Ólympíuleikum og á Heimsmeistaramóti. Ég hef starfað fyrir Íþróttafélagið Þór í yfir fjögur tíu ár í hinum ýmsu deilum og ráðum og var meðal annars formaður Þórs í sex ár. Það er mjög gefandi að starfa fyrir Þór og þar hef ég eignast marga góða vini og fengið að vinna með börnum og unglingum sem er ómetanlegt. Af hverju L-listinn? Það er vegna þess að hér er um bæjamálaflokk að ræða sem tekur ekki mið af hefðbundinni flokkapólitík. Þessi listi skipar fólk úr öllum áttum með mismunandi reynslu og sýn. Öll viljum víð láta gott af okkur leiða og gera góðan bæ betri. Málefni sem ég brenn fyrir eru velferð barna og unglinga, hag eldri borgar og skipulagsmál bæjarins. Frekari uppbygging í Hlíðafjalli er verkefni sem þarf að fara að huga að og þá til langs tíma.