
Anna Hildur Guðmundsdóttir
Position #14
Formaður SÁÁ
Ég hef unnið að áfengis- og vímuefnamálum og forvörnum frá árinu 2005 og starfaði um árabil sem áfengis- og vímuefnaráðgjafi hjá Akureyrarbæ. Sú reynsla hefur kennt mér hversu mikilvægt er að samfélagið standi vel að baki fólki þegar á reynir. Ég hef tekið virkan þátt í bæjarmálum frá árinu 2011 og setið í ýmsum nefndum. Í dag er ég formaður SÁÁ og hef gegnt því hlutverki frá árinu 2021, þar sem ég vinn að því að efla meðferð, fræðslu og forvarnir í samfélaginu. Ég er gift Jóhanni Helgasyni og saman eigum við tvær dætur, fjögur stjúpbörn og sex barnabörn. Fjölskyldan og samfélagið eru mér afar mikilvæg. Ég vil halda áfram að efla velferðarþjónustu sveitarfélagsins og gera fólki auðveldara að nálgast þá þjónustu sem það þarf á að halda. Mikilvægt er að fjölga búsetuúrræðum fyrir fólk sem stendur höllum fæti. Ég vil einnig styrkja hlutverk skólanna sem miðpunkt hverfanna og tryggja að þar sé öruggt skjól fyrir börn þar til vinnudegi foreldra lýkur. Jafnframt vil ég efla tómstundastarf innan skólanna, bæði skapandi starf og íþróttir, og tryggja að öll börn hafi raunverulegt aðgengi að slíku starfi – óháð stöðu eða stétt.