
Anna Fanney Stefánsdóttir
Position #20
Sjúkraliði
Ég er fædd og uppalin á Akureyri og er gift Marinó Hólm Ingvarsson og eigum við 3 börn. Ég er lærð sjúkraliði og heilsunuddagi og starfa sem sjúkraliði á Gjörgæsludeild Sjúkrahússins á Akureyri. Ég hef starfað á sjúkrahúsinu í um 9 ár. Ég er sjálfboðaliði og varamaður í stjórn Rauða Krossins, hef verið sjálfboðaliði í Frú Ragnheiði í 8 ár. Í tvö kjörtímabil hef ég setið á lista L-listans og held því stolt áfram🧡 „Það er svo frábært hvað Akureyrarbærinn okkar er að stækka hratt, íbúum fjölgar sem og ferðamönnum. Það er náttúrulega ekkert skrýtið að fólk flykkist í besta og fallegasta bæ landsins sem hefur upp á svo ótal margt að bjóða. Við höfum gott skóla og leikskólakerfi, tæpar 50 íþróttir sem hægt er að stunda, glæsilegt listasafn, dásamlegar útivistaraðstöður, fyrsta flokks sundlaugar, frábært leiklistar- og tónlistastarf og að sjálfsögðu besta veðrið. En við erum með velferðar- og heilbrigðiskerfi sem hefur þurft að lúta síðastliðin ár, að miklu leiti vegna fjárskorts frá ríkinu, en núna verðum við að láta í okkur heyra og þrýsta á ríkið! Það er með öllu óboðlegt að geta ekki boðið íbúum Akureyrarbæjar upp á grunn heilbrigðis- og læknaþjónustu!”